13. mars 2009 klukkan 17:05
Komiði sæl og blessuð börnin góð. Í þessum pósti eru mikilvægar
upplýsingar varðandi morgdegisverðinn okkar laugardaginn 14. mars næst
komandi.
Gleðin hefst klukkan 11:00 með söngnum "Drottinn er minn hirðir" - með
ljúfu gítar undirspili. Í framhaldi af því verða veitingar bornar á borð.
Veitingarnar verða með sérstöku sniði og skaffar hver þátttakandi matvöru
samkvæmt eftirfarandi lista (Samþykkt af veitingaskipulagsnefnd 2009):
-Bjarni tjók: Tómatar, gúrka, melóna og ananas.
-Baldur galdur (sem er margfaldur): Ávextir = Vínberíó, jarðaberó,
appelínó og mangóó.
-Auður rauður: Petsusnúðar.
-Sunna = Skinka.
-Berglind Árnadóttir og Hildur Þórðar: Ostar.
-Faðir Helgi: Salaaató!
-Ingólfur (betur þekktur sem Ingó Idol): Graflax að hætti fyrirlesarans.
-Arndís Looove: Viðbit (smjör) og graflaxsósa.
-Yrsa: Gooooos-i.
-Sigrún (Rúna röff): Djíííííúúúús.
-Óðinn hjarta Guðrún: Súhh..? [skrifað á miða] (Geri ráð fyrir
súkkulaðiköku?).
-Sigurbjörg (lygari með meiru) og Þórdís: Rúnstykki og brauðmeti.
-Löffa: Bollur? [var strikað yfir á miða].
-Kúri: Hús og heitt súkkulaði.
Athugið að listinn er ekki tæmandi og er hverjum frjálst að bæta við eftir
eigin hentisemi.
Klukkan 12:45 að íslenskum tíma hefst svo leikur Man. Utd. (litla liðinu í
Manchester) og Liverpool á Stöð 2 - Sport 2. Þar sem höfundur er ekki með
Stöð 2 - Sport 2 verður reynt að horfa á leikinn í gegnum vefinn (Takist
það ekki verður því reddað)
Þá er komið að skemmtilegasta liðnum í þessum pósti. Bjórmálin. Á litlum
lokuðum fundi var tekin ákvörðun um að þeir tveir kassar af öli sem við
fengum í vinning fyrir sigur á Lybbaleikunum 2009 verði;
Kassi 1: hinn íslenski bragðgóði og um fram allt sígildi Thule.
Kassi 2: öl sem framleitt er samkvæmt hágæða dönskum stuðli af Vífilfelli,
Carlsberg.
Í meðfylgjandi viðhengi er kort. Út frá þessu korti er miðað við að besta
leiðin sé eftir Sundlaugavegi frá Sæbraut, Kringlumýrarbraut eða
Suðurlandsbraut/Laugavegi. Aðrar styttri leiðir eru einnig mögulegar.
Með ástarkveðju, ykkar Kúri.
Lybbalingar 2006
02. febrúar 2009 klukkan 14:13
Sæl öll sömul.
Nú þegar lítur út fyrir að vel viðri fram á föstudag er þess virði að spurja hvort einhverjir/einhverjar séu til í að slá saman í litla dagsferð í Bláfjöll, njóta lífsins og skella sér á skíði eða snjóbretti.
Ef áhugi er fyrir hendi fá allir sem mæta fimmhundruð krónur frá stjórninni. Skiljið endilega eftir comment ef þið viljið joina hópkúr í Bláfjöllum ;)
-Kúri
Lybbalingar 2006
24. desember 2008 klukkan 13:41
Gleðileg jól ástarpungarnir mínir ;D
Eigið það sem best yfir hátíðarnar :)
Kv. Jólaálfurinn hann Anton
Lybbalingar 2006
01. desember 2008 klukkan 20:00
Hið árlega afmælispróflokapartý verður haldið
föstudaginn 19. desember í partýpleisinu á Hæðinni í Kópavogi. Að venju hefur þema verið ákveðið og í ár
varð GULL/SILFUR þema fyrir valinu, allir ættu nú að ráða við það.
Mæting er milli 20 og 21
Hlökkum alveg rosalega til að sjá ykkur,
Auður, Björk og Þórdís
Lybbalingar 2006
11. september 2008 klukkan 11:04
Partý hjá mér fyrir nýnemadjammið, mæting um kl.17.
Herlegheitin verða haldin í minni lúxusvillu fyrir aftan Háteigskirkjuna.
Heimilisfangið er Háteigsvegur 31, íbúð 203. Nafnið mitt er á hurðinni.
Ætlast er til að þið mætið í ykkar fínasta pússi sem hæfir húsakynnum...
Ég bíð spennt
Kveðja Yrsa Örk
Lybbalingar 2006
23. júní 2008 klukkan 00:33



....að gera eitthvað allt annað

kveðja að austan, Golli.
Lybbalingar 2006
15. maí 2008 klukkan 15:45
Til hamingju með að vera komin í sumarfrí!!!
Lybbalingar 2006
28. mars 2008 klukkan 15:44
Lybbalingar 2006
17. mars 2008 klukkan 16:28
Við stelpurnar vorum að spá í að fara á Vegamót á morgun eftir tíma og fá okkur hádegismat. Það væri gaman að fá fleiri með þar sem við eigum ekki eftir að sjást í heila viku...sniffsniff...og gera okkur glaðan dag 
Björk, Ólöf, Sigrún, Yrsa og Þórdís
Lybbalingar 2006
18. febrúar 2008 klukkan 23:37
Er ekki kominn tími á hina árlegu skála árshátiðar upptöku vídjó helgi????
Anton... Er kameran ekki enn í góðu lagi??
Er ekki málið að hafa þetta aðeins lengara í ár...? þetta var alltof stutt hjá okkurí fyrra:)
Lybbalingar 2006